Komin heim.

Jæja þá erum vid komin heim Hlæjandi

Æðisleg ferð að baki, en alltaf gott að koma heim til sin aftur Hlæjandi Fórum fyrst til Vestmannaeyja, eftir viðkomu hja mömmu i ala læri Ullandi og pasta hja Ólu og Inga Þór.

Frábært að vera í eyjum, rosalega skemmtileg páskaeggjaleit med gelti, mjálmi, jólaóskum og símaati hihihi eins og eyjarpeyjum og pæjum er von og vísa. Ekki var nú hættan á að maður missti einhver kílóin þar, endalaus veislumatur + fullt af íslensku nammi og páskaeggjum.mmmmmm. Ég og Sigga snérum svo aftur á fastalandið á mánudeginum á medan Ruud varð eftir til ad negla nokkrar spítur med Gunna og leika sér svoldið med laiserinn sinn Glottandi

Vid fórum á hótel mömmu og höfðum það gott. Á miðvikudaginn var ég dreginn í smáralindina í hjólastólHissa hihihi í mjög svo skemmtilega verslunnarferð med systrum og mömmu. Keypti mér þar ámeðal þennan lika flotta sumarkjól sem ég var svo ánægð med þar til Ruud kom heim og sagði mér að sér fyndist þetta nú vera eins og óléttukjóll Öskrandi huuuu honum skilað (kjólnum sko) Var svo um kvöldið og nóttina hja Heiðu minni og dætrum Ullandi Frábært. Einar vinur minn kíkti í kaffibolla og pólitískar umrædur á medan lesið var í dósir og glös Hlæjandi Frábær heimsókn!!!! Takk takk Heida mín !!!

Svo kom Ruud heim frá eyjum og við í svaka matarboð hja Helgu og Krumma. Þriggja rétta kvöldverda að hætti húsins Ullandi Mjög huggulegt kvöld og synd ad þad líði 5 ár á milli svona endurfunda !!!

Svo rann nú upp langþráður laugardagur med rigningu, roki og smá éljum að ógleymdri sólarglætu Ullandi. Allir puntudu sig, og haldið var í myndartöku hjá Sollu. Við auðvitad öll þrælvön, nema Ruud greyid sem skildi ekkert í þessum látum og hamagangi Hlæjandi  Og Victoria sem stóð sig vel en fanst þetta bara ekkert fyndið Skömmustulegur

Þá tók nú við veisla aldarinnar. Algjör drauma veisla !! Edda frænka sagdi okkur sögur af prakkarastrikum tvíburana. Rúnar Þór frændi söng eins og engill, svo ég fékk tár í augun og hlínaði um hjartarætur Hlæjandi Frábært að fá að sjá strákinn svona LIVE Ullandi Svo las Laeila upp nokkur gullkorn frá okkur systkinunum med glæsibrag. Og hún mamma mín töfraði auðvitað fram þvílikar gúmmuladi veitingar eins og henni einni er lagið !!!! Ég hitti ættingja sem ég hef ekki séd í 30 ár. Og hann pabbi minn var alsæll Hlæjandi Dagur sem við komum til med að muna lengi !!!

Um kvöldið komu svo Siddý og Gunni, Heiða og dætur og vid saman heima hjá mömmu og pabba þar sem gamla manninum var sungin alveg einstaklega skemmtilegur bragur samin af eyjahjónumHlæjandi

Á mánudaginn var mér og Siggu svo boðið í mæðrablessun hjá Lindu og hennar ófædda barni.  Tað var yndislegt kvöld og kom mér á óvart Brosandi Takk fyrir ad bjóöa mér að vera meðBrosandi

Síðasta kvöldið var svo skravlað með mömmu, pabba, Laeilu og Guðný um landsins gagn og nauðsynjar fram á morgun hihihi ekki leidinlegt tað Ullandi

Þegar þetta er skrifað fynst mér nú alveg med ólíkindum hvað maður gat gert og upplifað í því ástandi sem maður var í hihihi Frábært að fá svona mikid út úr tessu !!! Ég vill þakka allri fjölskyldunni fyrir frábærar stundir!!!!!!!!!!!!!!!

Þegar við komum heim í nótt, var talvan hruninn og nú sit ég nidri hjá Frikka mínum og FÆ fyrir náð og miskun að nota hans tölvu, þar sem hann er ad læra undir stærðfræðipróf sem hann fer i á morgun.

 Læt tetta duga í bili, ég er svo þreitt núna og í dag ad það er eins og við höfum verið að koma úr heimsreisu með árabát Öskrandi

Kær kveðja Sigrún. 

 


Smá aukaspenningur :)

Jæja þá er síðasti sólahringur búin að vera spennandi. Fór á læknavaktina í gærkvöldi, alveg að drepast í bakinu enn einusinni Gráta Fékk sprautur og var send til Oslo í morgun. Þegar ég kom þangað var mín barasta lögð inn Hissa Fékk auðvitað sjokk og sagðist vera að fara til Islands á morgun. Allir voða hissa hvernig ég héldi að ég gæti setið í flugvél í svona ástandi Öskrandi Allavega var ég loksins send í segulómun með litarefni og enn ekki hvað, brjósklosið komið í þriðja skipti siðan 10 januar Öskrandi Ég hélt í alvöru að það væri ekki hægt að vera SVONA óheppin Tala af sér meiri segja í þessari fjölskyldu. En svo kom læknirinn til min þegar ég var búin að væla í hjúkkunum og segja þeim að við yrðum að fara, og sagði að ég mætti alveg fljúga, hann taldi enga hættu á lömun eða öðrum alvarlegum afleiðingum, og eins og ég sagði við hann þá hljóta að vera bæði læknar og sprautur á Islandi Skömmustulegur

Svo að við erum á leiðini, búið að pakka og byrgja sig upp af verkjalyfjum !!!

Ha det bra sð lenge !!! Sjáumst á morgun !!

Sigrún.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband