Ný nótt- nýr dagur.

Hæhæ allir.

Heilsan ekki mikið skárri í nótt, er búin að reyna að sofa í LazyBoy stólnum án árangurs    En ætla samt að skella mér í klippingu í dag, er farin að líta út eins og Gilitrutt   Svo er ég búin að fá tíma í sjúkraþjálfun á morgun, vona að hún geti nuddað mig svolítið   

Annars er ekki mikið bíð að vera að gerast hér, ég talaði aðeins við nýbökuðu mömmuna hana Lindu og heyrði aðeins í litla englinum henni Kolbrúnu   það var voðalega gaman.

 Ruud skelti sér út með kajakin í dag. Þvældist aðeins um Glommu og kíkti á einhverjar eyjur, en ekkert spennandi til að fara í útileigu á sagði hann.

 Spjallaði aðeins við prinsessuna mína hana Victoríu á netinu í kvöld, alveg er þetta nú frábært að geta verið í svona sambandi. Hún þekkir mig strax og kyssir mig og knúsar um leið og ég birtist. Og svo vill hún auðvitað fá fyndna ullu karlinn á Msninu. Hann er auðvitað flottastur og hún búin að fá að sjá hann frá því að hún var nokkura mánaða   Núna er klukkan að ganga 5 hjá mér og ég ætla að prufa einusinni enn að leggja mig í stólinn og gá hvort ég nái ekki nokkrum hænum  áður en ég þarf að skrölta í klippingu.

Læt þetta duga í bili, kæru vinir , vandamenn og allir aðrir menn og konur   

  Bæbæ Sigrún.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ elsku dúllan mín , það er ömurlegt að þú skulir vera svona . Vona að sjúkraþjálfin geti eithvað hjálpað . Mikið er nú gott að það er búið að draga frá augonum og þú sjáir út aftur :) hehe , ekki það að ég ætti að segja neitt , þarf sjálf að fara í klipingu :)

Elsku ykkur í stutt og sýtt hár :)

Heiða og Victoría Rut (IP-tala skráð) 27.6.2006 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband