17.7.2006 | 11:30
Nýtt blogg og myndir :)
Héðan er allt gott að frétta úr sól og sumaryl Hitabylgja síðustu daga og spáir hlínandi. Pabbi, Ruud og Sigga fóru í bátsferð í gær, sigldu upp Glommu og bleyttu aðeins í veiðistöngunum, án mikils árangurs en þeim til mikillar gleði. Læt nokkrar myndir fylgja frá ferðinni.
Af mér er það að frétta að heilsan er ekki alveg eins góð og ég hefði vonað, en samt miklu betri en hún var.
Það er rosalega gaman að hafa mömmu og pabba í heimsókn, og mikið spjallað og sprellað. Við mamma ætlum að skella okkur niður á Torg og láta snyrta pínulítið langa hárið á Frikka mínum Ég tek það annars mikið með ró og spekt, sit lítið og ligg og stend þeim mun meira
Ætla að reyna að vera svoldið dugleg að blogga á meðan gömlu eru hér, svo fjölskyldan fái að fylgjast með
Annars ekkert mikið nýtt að frétta,við vonum bara að litlu snúllunni henni Victoriu Rut fari að batna og að læknarnir finni út hvað er að hrjá skottuna okkar
Læt þetta duga í bili, ástarkveðjur til allra sem ég þekki og þekki ekki
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:31 | Facebook
Athugasemdir
Hæ hæ viltu fara að senda mér svona sól :) þarf á henni að halda :) hehe . En annars gott að vita að það er gaman hjá þér dúllan mín og nauðsinlegt að fylgast með mömmu og pabba sko :) hihi . Victoría er bara búinn að vera þokalega hress í dag svona líkari sjálfri sér :) . Elskum ykkur í veiðistangir og fiska :) kveðja Heiða , Victoría Rut og Lilja Rós :)
Heiða amma og Victoría Rut (IP-tala skráð) 17.7.2006 kl. 19:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.