29.1.2007 | 21:35
Góð helgi !!
Ætla nú ekkert að skrifa mikið núna, er á fullu að lesa allt sem þið skrifuðuð á meðan ég var í burtu. En helgin var rosalega fín, fór aðeins í hesthúsið og er að venja mig og Jóku hvor við aðra. Ég fékk að spilla henni smá og kemba og allt gekk vel og áður en ég veit af verð ég farin að fara á bak. þ.e.a.s ef bakið á mér gefur sig ekki alveg.
Skelli inn annari vetrar mynd sem er ekin hér í nágrenninu, búin að vera vetur í tæpar tvær vikur og nú er bara spáð plúsgráðum.
Kær kveðja til ykkar allra, Sigrún.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Það er "bara" 6,5 gráðu hiti hjá okkur! velkomin aftur
Bragi Einarsson, 29.1.2007 kl. 22:40
Það er "bara" 6,5 gráðu hiti hjá okkur! velkomin aftur
Bragi Einarsson, 29.1.2007 kl. 22:40
Það er alltaf gott að breita til og slappa af og desktra við dýrin...þau "fílaða" eins og krakkarnir segja
Góðar kveðjur til þín.
Solla Guðjóns, 29.1.2007 kl. 23:01
Gaman að sjá þig aftur elsku Sigrún min Þetta er virkilega falleg mynd þarna hjá þér. Það er óhætt að segja að það sé búið að vera nó að gera á mínu heimili undanfarna daga..hehehe.. Og takk fyrir innlitið Knússs....Maggy...
Maggý Jónsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 08:09
Hæ hæ, gaman að sjá þig aftur Sigrún.
Já ég tek undir me Guðmudi, farðu nú varlega næstu dagana.
Bestu kveðjur
Kolla
Kolla, 30.1.2007 kl. 08:48
gott að sjá þig aftur ...farðu varlega með þig ..knús
Margrét M, 30.1.2007 kl. 13:14
Já farðu varlega Sigrún mín en samt er gott að þú styrkir þig en kanski ekki á hestbaki strax. Mikið er þetta falleg mynd. Nú er um það bil 7 stiga hiti hér. Alltaf er þetta öfug við Evrópu. Hafðu það gott. J
Jórunn Sigurbergsdóttir , 30.1.2007 kl. 14:31
Hæ hæ og takk fyrir allar kveðjurnar, það er engin hætta á að ég fari mér að voða, lét mig bara dreyma um að það væri hægt að leiða hestinn undir mér eins og er gert við krakkana hahahah En fann svo út að ég komst ekki einusinni upp á hestinn og er hún meira að segja Íslensk svo ekki er hún RISI
Sigrún Friðriksdóttir, 30.1.2007 kl. 14:54
flott mynd hjá þér....kveðja frá hlýju Íslandi hehe
Ólafur fannberg, 30.1.2007 kl. 16:07
hæhæ "móðir" góð.... þú hossast um á henni Jóku litlu áður en þú veist... besta sem þú gerir er að hlakka til einhvers og hvað skemmtilegra en að hlakka til að koma og knúsa "dóttir" sína og sjá Jóku í leiðinni :D síðan ferðu út í ótemjunar með mér :D
Guðný (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 17:22
Hehehe ekki spurning Guðný fer örugglega að keppa á ótemjum bráðum
En takk fyrir yndislega helgi og FRÁBÆRAN mat mmmmmm
Knúsí klemsí koz
Sigrún Friðriksdóttir, 30.1.2007 kl. 17:29
Frábær mynd...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.1.2007 kl. 17:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.