4.2.2007 | 21:15
Engar klámmyndir
Jæja þá það er best að sitja á púkanum í sér og hætta að setja inn klámmyndir hér Og þá eru kisur voða skemmtilegar Annars er helgin búin að vera góð, ég með betra lagi þar til í morgun og skildi ekkert í þessu (hafði ekki prufað stellinguna sem Kolla prufaði) en þá vaknaði ég slæm aftur og vitir menn nú er að kólna hér svo kanski það sé veðrið sem fer svona í hel... bakið. Allavega ekki búin að gera neitt skemmtilegt í dag er örugglega mest búin að vera eins og köttur nr 3 á myndini EN ÆTLA að vakna hress í fyrramáli og þarf ekki að fara á neina fundi fyrr en á miðvikudag jibby
Ástarkveðjur til ykkar allra, Sigrún.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Æ flottar kisur. Leiðinlegt að þú er verri í bakinu núna. Tók mig langan tíma að verða eitthvað betri en það kemur vonandi hjá þér líka með tímanum eins og hjá mér. Var búin að stunda æfingar og sund í meir en ár þegar ég varð eitthvað betri. Baráttukveðjur.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.2.2007 kl. 21:19
Takk Jórunn mín, var nú enþá að staulast þetta með hækju en fann ekki eins mikið til en ég er búin að eiga í þessu basli í ágúst 2005. EN held samt en í vonina
Sigrún Friðriksdóttir, 4.2.2007 kl. 21:26
Við erum öll dónar... guð sé lof.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 4.2.2007 kl. 21:40
Bragi Einarsson, 4.2.2007 kl. 23:11
Enginn er verri þótt hann sé perri, eða var það ekki alveg örugglega þannig.
Knús og nuss
Kolla, 4.2.2007 kl. 23:37
Sætar þessar pussycat myndir ekkert dónó við þessar hihi , nema það sem mansheilanmu tegst að brengla kanski pussycat purrrrrr hihi verð að halda í við systir mína er það ekki love love lvoe
Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 5.2.2007 kl. 00:21
hehehehe.......
Ólafur fannberg, 5.2.2007 kl. 08:44
Þú ert væntanlega að tala um svefnstellingu
Solla Guðjóns, 5.2.2007 kl. 08:50
ferlega sætar kisur ..slæmt að þú sért verri í bakinu,en það má svo sem búat við því þegar kólnar í veðri ,kalt veður og lægðir fara ferlega illa í vefjagiktina mína, er lang best þegar ég er á spáni eða einhverju álíka heitu landi ..þú bara heldur í bjartsýnina eftir fremsta megni .... vonandi ertu betri í dag en þú varst í gær ..
Margrét M, 5.2.2007 kl. 08:52
Ég er eins og köttur nm. eitt i dag..creepy..er að standa upp úr inflúensunni og fæ alltaf hálfgert hjartaáfall ef ég lít óvart í spegil . Hafðu það gott Sigrún sæta. Trúlega er það veðrið sem fer svona í bakið..nú er bara að biðja fyrir blíðu
Ester Júlía, 5.2.2007 kl. 12:07
Ohh þið eruð svo miklar dúllur Fæ alltaf svo sæt komment að ég næstum því roðna
Sigrún Friðriksdóttir, 5.2.2007 kl. 13:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.